Áróra er farin að kvarta undan hvað ég sé löt að blogga þannig
að ég verð nú að blogga smá!!!! Sérstaklega þar sem ég er ekki
lengur með internet heima.....já ég er nefnilega að fara að flytja
í dag.......bíð bara eftir að Anne komi sér út af íbúðinni og láti
mig fá lyklana...hún er að flytja út og þrífa as we speak!!!!
Það verður æðislegt að flytja í sentrum, 1min í skólann, 2min á
stúdentapubbinn, 3 min í búðina, 4 min á lokal pubinn, 5 min til
Stine og 6 min til Kim!!!! Bara snilld!!!
Já það hefur ýmislegt verið í gangi hér, "UKA" eða vikan er
nýbúin en það er djammvika í skólanum, heil vika með tónleikum,
trúbadorum, skíðadag ( þar sem ég sat nú bara í brekkunni ásamt
fullt af fólki horfði á aðra skíða og drakk bjór....geggjað
gaman).
Svo eru Kim, Kjell og ég búin að stofna keiluteam, þannig að
annan hvern miðvikudag keppum við við annað lið......skora á
gellurnar í keilu þegar ég kem heim....er orðin djö...góð og hætt
að henda sjálfri mér með kúlunni í rennuna ( ég held að þeir sem
voru með gleymi því aldrei).
Svo um páskana verðum við Kim með Iselin og ætlum á skíði, borða
ísl páskaegg (takk mamma) og hafa gaman!!!!
Ég er komin með vinnu á humarhúsinu í sumar, hringdi í Jónu og
auðvitað vildi hún fá mig í sumar.......svo kannski hjálpar maður
Áróru og Dodda ef þeim vantar hjálp...sérstaklega Akraneshelgina
eins og í fyrra, man ekki hvað það heitir!!!
En jæja svona er það nú heyrumst síðar SRÞ